Um Okkur
BRASA er veitinga- og viðburðastaður á annarri hæð Turnsins við Smáratorg í Kópavogi.
Hér mætast matur, drykkur og upplifun í hlýlegu og líflegu andrúmslofti þar sem allir finna eitthvað við sitt hæfi.
Um matinn
BRASA býður upp á ríkulegt hádegishlaðborð og ljúffengan a la carte hádegisseðil þar sem suður-amerískur og asískur innblástur fær að njóta sín.
Við bjóðum einnig upp á glæsileg rými fyrir viðburði af öllum stærðum og gerðum. Hvort sem tilefnið er árshátíð, brúðkaup, ferming, fundur eða fjölskylduboð, er BRASA kjörinn vettvangur fyrir eftirminnilega stund.
Bak við tjöldin
Að baki BRASA standa Viktor Örn Andrésson og Hinrik Lárusson, eigendur Sælkerabúðarinnar og Lúx veitinga.
Viktor Örn er margverðlaunaður kokkur, m.a. kokkur ársins 2013 og bronsverðlaunahafi í Bocuse d’Or 2017. Hinrik Örn hefur þrátt fyrir ungan aldur náð framúrskarandi árangri, m.a. sem Kokkanemi ársins 2017 og Evrópumeistari í matreiðslu.
Saman hafa þeir byggt upp sterkt orðspor í veitingageiranum og skapað BRASA — stað þar sem gæði, ástríða og góð upplifun eru í fyrirrúmi.